Starfsmenn og sérhæfing
Um Allir Sáttir - Þjónusta og starfsmenn.
Þjónusta
Sáttamiðlun
Sáttamiðlun er gagnleg aðferð fyrir tvo eða fleiri aðila til að leita lausnar á ágreiningi. Sáttamiðlari er óháður og hlutlaus aðili sem stýrir sáttaferlinu og hjálpar þátttakendum að finna lausn á ágreiningi og komast að sameiginlegri lausn sem allir aðilar eru sáttir við.
Ráðgjöf
Við sérhæfum okkur í ráðgjöf í samskiptum inn á heimilum, í skólum og á vinnustöðum. Sérstök áhersla er lögð á samskiptum foreldra og barna og aðstoð við að leita lausna í eineltismálum í skólum og á vinnustöðum.
Handleiðsla
Við bjóðum upp á faghandeiðslu bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði.
Einkahandleiðsla er mikilvæg til að bæta líðan einstaklinga í vinnu. Vellíðan í starfi og geta til að greina milli einkalífs og vinnu eykur hæfni í starfi og dregur úr veikindum vegna álags. Hóphandleiðsla á vinnustöðum eykur samheldni og samvinnu og getur verið sérstaklega miklvæg þar sem álag er mikið.
Fræðsla
Við bjóðum upp á margskonar fræðslu. Svo sem fræðslu um einelti í skólum og á vinnustöðum, sáttamiðlun, vinnustaðamenningu og uppeldi og samskipti.
Einnig bjóðum við upp á samtöl og fræðslu fyrir þá sem vilja kynna sér hugvíkkandi efni í meðferðartilgangi.
Ráðgjafar
Sigurður Hólm Gunnarsson
Framkvæmdastjóri og ráðgjafi.
Menntun
- Forysta og stjórnum með áherslu á verkefnastjórnun • Háskólinn á Bifröst – 2023 (áætlað).
- MAPS MDMA Therapy Training • MAPS (Multidisciplinary Association for Psychedelic Studies) – 2022.
- Psychedelic-Assisted Therapy Training • Integrative Psychiatry Institute – 2022.
- Vefmiðlun, diplóma • Háskóli Íslands – 2021.
- Sáttamiðlun • Sáttamiðlaraskólinn – 2019.
- Iðjuþjálfun BSc • Háskólinn á Akureyri – 2009.
- Fjölmörg styttri námskeið/símenntun sem tengjast meðferðarvinnu, stjórnun o.fl.
Störf og þátttaka í frjálsum samtökum
- Eigandi og ráðgjafi hjá Allir Sáttir.
- Framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá ráðgjafastofunni Tvö Heimili.
- Eigandi og vefhönnuður hjá ProXima.
- Forstöðumaður á Skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík frá 2010 til 2022. Heimilið var á vegum Barnaverndar Reykjavíkur og var fyrir 13-18 ára ungmenni sem þurftu tímabundið að búa utan heimilis af ýmsum ástæðum.
- Formaður Hugvíkkandi sem eru samtök áhugafólks um hugvíkkandi efni og voru stofnuð í september 2022.
- Sat í stjórn Siðmenntar frá ca. 2000-2020.
- Forstöðumaður á áfangaheimili fyrir fullorðna geðfatlaða í Reykjavík og sem deildarstjóri í búsetukjarna fyrir geðfatlaða í Reykjavík.
- Framleiddi heimildarþátt um einelti. Þátturinn var sýndur á RÚV í mars 2003 og síðar gefinn út af Námsgagnastofnun.
- Heldur úti vefmiðlinum Skoðun.
Netfang: siggi@allirsattir.is
Verðskrá
Samtal
- Einstaklingsviðtal: 20.000 kr.
- Viðtal eða sáttamiðlun (tveir aðilar): 25.000 kr.
- Eftirfylgni í síma eða rafrænt: 5.000 kr.
Forfallagjald
- Tilkynna þarf forföll fyrir kl 15 deginum áður.
- Rukkað er forfallagjald sem nemur helmingi við kostnað bókaðs tíma.