Sáttamiðlun
Sáttamiðlun er gagnleg aðferð fyrir tvo eða fleiri aðila til að leita lausnar á ágreiningi.
Sáttamiðlun
Sáttamiðlun er gagnleg aðferð fyrir tvo eða fleiri aðila til að leita lausnar á ágreiningi. Sáttamiðlari er óháður og hlutlaus aðili sem stýrir sáttaferlinu og hjálpar þátttakendum að finna lausn á ágreiningi og komast að sameiginlegri lausn sem allir aðilar eru sáttir við.
Í sáttamiðlun spila deiluaðilarnir sjálfir stærsta hlutverkið en sáttamiðlari aðstoðar aðilana við að skilja stöðu sína, þarfir og sameiginlega hagsmuni.
Ferli sáttamiðlunar
- Aðilar sammælast um að leysa ágreining sinn.
- Aðilar hittast ásamt sáttamiðlara yfirleitt á hlutlausum stað.
- Aðilar útskýra hvor fyrir öðrum þeirra upplifun af vandanum eða deilunni.
- Hagsmunir og þarfir aðila eru ræddar.
- Möguleikar að lausn eru settir upp.
- Lausnin byggist upp á umræðum aðilanna.
- Komist er að samkomulagi í sameiningu.
Hlutverk sáttamiðlara
- Sáttamiðlari er ávallt hlutlaus.
- Sáttamiðlari tryggir að sjónarmið deiluaðila komi fram.
- Sáttamiðlari sér til að allir geti komið með athugasemdir og tillögur að lausn.
Sáttavottorð
- Náist sátt getur sáttamiðlari gefið út sáttavottorð.
- Sáttamiðlara er heimilt að gefa út sáttavottorð eftir að hafa tvíboðað aðila á fund og ef sáttafundir hafa ekki borið árangur.
- Í sáttavottorði kemur fram hvaða fundir fóru fram, hvers efnis ágreiningur aðila er og hver afstaða aðila sé.
- Sáttavottorð er gilt í sex mánuði og þurfa aðilar að stefna máli fyrir dómstól innan þess tímaramma.
Verðskrá
Samtal
- Einstaklingsviðtal: 20.000 kr.
- Viðtal eða sáttamiðlun (tveir aðilar): 25.000 kr.
- Eftirfylgni í síma eða rafrænt: 5.000 kr.
Forfallagjald
- Tilkynna þarf forföll fyrir kl 15 deginum áður.
- Rukkað er forfallagjald sem nemur helmingi við kostnað bókaðs tíma.