ÞJÓNUSTA / RÁÐGJÖF

Ráðgjöf

Rými fyrir líðan, tengsl og daglegt líf.

Ráðgjöfin felur meðal annars í sér samtalsmeðferð vegna þunglyndis og kvíða, parameðferð og stuðning við aðrar áskoranir í lífinu. Einnig er boðið upp á samskiptaráðgjöf fyrir fjölskyldur, skóla og vinnustaði.

Hlý sólarupprás yfir grýttri strönd

NÁLGUNIN OKKAR

Stuðningur sem tekur mið af þér.

Í samtalsmeðferð er rými til að ræða líðan, hugsanir, tilfinningar og það sem reynist erfitt í daglegu lífi. Parameðferð veitir pörum rými til að skoða samskipti sín og tengsl.

Nálgunin byggir á ACT (Acceptance and Commitment Therapy), hugrænni atferlismeðferð (CBT) og iðjuþjálfun. Ráðgjöfin er löguð að þörfum þínum og því sem þú vilt vinna með.

Ráðgjöfin nær einnig til samskipta foreldra og barna, foreldrasamvinnu og áskorana í skóla eða starfi.

01

Foreldrar og börn

Samtal um samskiptaörðugleika, meðal annars á unglingsárum, og leiðir til að bæta heimilisbrag.

02

Foreldrasamvinna

Stuðningur við samstarf foreldra sem búa ekki saman, með hagsmuni barna að leiðarljósi.

03

Skólar og vinnustaðir

Ráðgjöf um samskipti og stuðningur þegar ágreiningur eða grunur um einelti kemur upp.

Skýrari rammi um foreldrasamstarf

Boðið er upp á aðstoð við gerð sáttmála um foreldrasamvinnu. Í honum má skýra hvernig samstarfi og samskiptum er háttað.

VERÐ OG FYRIRKOMULAG

Gott að vita.

Viðtal · 50 mínútur

22.000 kr.

Tilkynna þarf forföll fyrir kl. 15 daginn áður. Forfallagjald er helmingur af verði bókaðs tíma.

Hellisgata 29, 220 Hafnarfjörður. Jarðhæð, hvít hurð til hægri.

Finnum næsta skref saman.

FLEIRI LEIÐIR

Skoðaðu aðra þjónustu.

Stillingar vafrakaka

Val þitt er geymt í þessum vafra í 180 daga. Vefurinn notar engar valkvæðar vafrakökur eins og er. Heimsóknir eru taldar án vafrakaka. Þú getur alltaf breytt valinu með hnappnum Stillingar vafrakaka.