ÞJÓNUSTA / HUGVÍKKANDI SAMTAL

Hugvíkkandi samtal

Faglegt samtal um spurningar, væntingar og reynslu.

Við bjóðum fræðslu og samtöl fyrir fólk sem vill ræða hugvíkkandi efni eða vinna úr reynslu af notkun þeirra.

Hlý morgunbirta og létt þoka yfir kyrrlátu vatni

NÁLGUNIN OKKAR

Gefðu reynslunni rými.

Áherslan er á að hlusta, skilja upplifunina og tengja hana daglegu lífi. Samtalið getur snúist um væntingar og áhyggjur fyrir upplifun eða úrvinnslu eftir hana.

01

Spurningar og fræðsla

Rými til að ræða hugmyndir, óvissu og það sem þú vilt skilja betur.

02

Úrvinnsla reynslu

Samtal um tilfinningar, hugsanir og merkingu upplifunarinnar.

03

Tenging við daglegt líf

Skoðum hvað reynslan þýðir fyrir þig og hvaða spurningar eða næstu skref hún vekur.

Sérþekking og skýr umgjörð

Sigurður Hólm Gunnarsson hefur sótt nám í Psychedelic-Assisted Therapy hjá Integrative Psychiatry Institute og námskeið hjá MAPS. Þjónustan sem hér er lýst er fræðsla og samtal, ekki gjöf hugvíkkandi efna.

Sigurður heldur einnig úti fræðsluvefnum Hugvíkkandi.is, þar sem fjallað er ítarlegar á íslensku um hugvíkkandi efni, áhrif þeirra, rannsóknir, sögu og skaðaminnkun. Þar er leitast við að greina skýrt á milli þess sem rannsóknir benda til og þess sem enn er óvíst, með umfjöllun um bæði mögulegan ávinning og áhættu. Vefurinn er ætlaður þeim sem vilja kynna sér efnið betur, hvort sem það er af almennum áhuga, vegna eigin reynslu eða til að styðja aðstandanda.

VERÐ OG FYRIRKOMULAG

Gott að vita.

Viðtal · 50 mínútur

22.000 kr.

Tilkynna þarf forföll fyrir kl. 15 daginn áður. Forfallagjald er helmingur af verði bókaðs tíma.

Hellisgata 29, 220 Hafnarfjörður. Jarðhæð, hvít hurð til hægri.

Byrjum á samtali.

FLEIRI LEIÐIR

Skoðaðu aðra þjónustu.

Stillingar vafrakaka

Val þitt er geymt í þessum vafra í 180 daga. Vefurinn notar engar valkvæðar vafrakökur eins og er. Heimsóknir eru taldar án vafrakaka. Þú getur alltaf breytt valinu með hnappnum Stillingar vafrakaka.