ÞJÓNUSTA / SÁTTAMIÐLUN

Sáttamiðlun

Rými fyrir ólík sjónarmið. Leið að sameiginlegri lausn.

Þegar ágreiningur stendur í vegi fyrir samskiptum getur hlutlaus þriðji aðili hjálpað. Sáttamiðlun er fyrir tvo eða fleiri sem vilja leita lausna saman.

Gyllt sólarljós yfir læk í grænum skógi

NÁLGUNIN OKKAR

Þið eigið samtalið og lausnina.

Sáttamiðlari stýrir ferlinu án þess að taka afstöðu með öðrum aðilanum. Hlutverkið er að skapa rými fyrir sjónarmið, þarfir og hagsmuni allra þátttakenda. Aðilarnir sjálfir móta mögulegar lausnir.

01

Undirbúningur

Aðilar sammælast um að leita lausna og hitta sáttamiðlara.

02

Hlustun og skilningur

Hver aðili lýsir upplifun sinni. Þarfir, hagsmunir og sameiginlegir snertifletir eru skoðaðir.

03

Næstu skref

Mögulegar lausnir eru ræddar og unnið að samkomulagi sem aðilarnir geta staðið við.

Spurningar um sáttavottorð?

Hafðu samband um aðstæður þínar og hvort sáttavottorð eigi við. Nánari upplýsingar um ferlið eru veittar í samtali.

VERÐ OG FYRIRKOMULAG

Gott að vita.

Viðtal · 50 mínútur

22.000 kr.

Tilkynna þarf forföll fyrir kl. 15 daginn áður. Forfallagjald er helmingur af verði bókaðs tíma.

Hellisgata 29, 220 Hafnarfjörður. Jarðhæð, hvít hurð til hægri.

Ræðum leið að sátt.

FLEIRI LEIÐIR

Skoðaðu aðra þjónustu.

Stillingar vafrakaka

Val þitt er geymt í þessum vafra í 180 daga. Vefurinn notar engar valkvæðar vafrakökur eins og er. Heimsóknir eru taldar án vafrakaka. Þú getur alltaf breytt valinu með hnappnum Stillingar vafrakaka.