UM OKKUR
Hér máttu vera þú.
Við leggjum áherslu á hlýju, virðingu og fagleg vinnubrögð. Hvert samtal tekur mið af þér og því sem skiptir þig máli.

IÐJUÞJÁLFI, RÁÐGJAFI OG SÁTTAMIÐLARI
Sigurður Hólm Gunnarsson
Ég heiti Sigurður Hólm Gunnarsson og rek Allir sáttir. Ég er iðjuþjálfi að mennt og hef einnig lokið viðbótarnámi í ACT, CBT og sáttamiðlun. Ég hef víðtæka reynslu af ráðgjöf, stjórnun og starfi með ungmennum, fjölskyldum og fólki með geðrænan vanda. Hjá Allir sáttir veiti ég ráðgjöf, sáttamiðlun, handleiðslu og fræðslu, meðal annars um samskipti og eineltismál.
Í starfi mínu legg ég áherslu á hlýju, virðingu og skýrt samtal. Mér finnst mikilvægt að fólk fái rými til að segja frá eigin upplifun og skoða hvað skiptir það máli. Við finnum næstu skref saman, með hliðsjón af þínum aðstæðum og því sem þú vilt vinna að.
Reynsla af fólki og krefjandi aðstæðum
Ég var forstöðumaður Hraunbergs, skammtímaheimilis fyrir unglinga á vegum Barnaverndar Reykjavíkur, frá 2010 til 2022. Þar tók ég þátt í uppbyggingu sólarhringsþjónustu og bar ábyrgð á starfsfólki og rekstri. Sú reynsla hefur mótað sýn mína á mikilvægi trausts, góðra samskipta og stuðnings í krefjandi aðstæðum.
Ég hef einnig stýrt búsetuþjónustu fyrir fólk með geðrænan vanda og skaðaminnkunarúrræðunum Frú Ragnheiði og Ylju hjá Rauða krossinum. Hjá Sjónarhóli sinnti ég fjölskylduráðgjöf og tók þátt í gerð fræðsluefnis. Þessi störf hafa gefið mér reynslu af ólíkum þörfum fólks og samstarfi við fjölskyldur og fagfólk.
Menntun og faglegur grunnur
Ég lauk BSc-prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2009 og námi í sáttamiðlun hjá Sáttamiðlaraskólanum árið 2019. Ég hef jafnframt lokið viðbótarnámi fyrir fagfólk í sáttar- og ábyrgðarmeðferð (ACT) og hugrænni atferlismeðferð (CBT), með áherslu á kvíða og þunglyndi.
Ég hef einnig lokið þjálfun hjá Integrative Psychiatry Institute og MAPS á sviði meðferðar með hugvíkkandi efnum. Sá bakgrunnur nýtist í fræðslu og samtölum um hugvíkkandi reynslu.
Eineltismál og fræðsla
Eineltismál hafa lengi verið meðal viðfangsefna minna. Ég er einn höfunda og framleiðenda heimildarþáttarins Einelti – helvíti á jörð, sem hefur verið sýndur á RÚV og notaður sem kennslugagn. Ég hef einnig haldið erindi hér á landi og erlendis og unnið að fræðslu um samskipti og einelti.
Þú þarft ekki að hafa öll svörin áður en þú leitar til mín. Við getum byrjað á samtali og skoðað hvað gæti hjálpað þér áfram.
04 / FAGLEGUR GRUNNUR
Unnið út frá faglegum forsendum.
Starfið byggir á faglegum forsendum með áherslu á eftirfarandi nálganir:
Acceptance and Commitment Therapy (ACT)
Cognitive Behavioral Therapy (CBT)
Mediation
Occupational Therapy