Handleiðsla
Handleiðsla er góð aðferð til að hjálpa starfsmönnum að líða betur og þroskast í starfi.
Handleiðsla
Handleiðsla er góð aðferð til að hjálpa starfsmönnum að líða betur og þroskast í starfi. Í handleiðslu fær starfsmaður aðstoð við að átta sig á uppbyggingu vinnustaðarins, markmiðum starfsins og möguleikum sínum í vinnu.
Hvað er gert í handleiðslu?
- Í handleiðslu fer starfsmaður með handleiðara yfir eigið starf, líðan á vinnustað og aðra þætti sem tengjast starfinu.
- Hægt er að velja um einstaklingshandleiðslu og hóphandleiðslu.
- Hóphandleiðsla hentar vel til að styrkja starfsmannahópa og samræma hugmyndafræði og vinnulag.
- Allt það sem rætt er í handleiðslu er trúnaðarmál.
Í handleiðslu er unnið meðal annars að því:
- að byggja upp og styrkja fagímynd.
- að bæta skipulag til að komast yfir verkefni dagsins og fyrirbyggja streitu.
- að skilja betur eigin viðbrögð og líðan í vinnu.
- að bæta verklag og fagleg vinnubrögð.
- að glöggva sig á skipuriti fyrirtækis/stofnunar, valddreifingu og ábyrgð.
- að auka samskiptafærni.
- að aðstoða starfsmenn að fóta sig á nýjum starfsvettvangi.
- að efla faglega þróun.
- að skilgreina óánægju í starfi.
- að finna nýjar áherslur í starfi.
Í hóphandleiðslu:
- situr hluti eða allur starfsmannahópurinn saman með handleiðarar.
- kemur starfsmannahópurinn sér saman um vinnulag og viðmið.
- er rætt um samstarf, áskoranir í starfi og leiðir til að bæta samskipti og líðan.
Verðskrá
Samtal
- Einstaklingsviðtal: 20.000 kr.
- Viðtal eða sáttamiðlun (tveir aðilar): 25.000 kr.
- Eftirfylgni í síma eða rafrænt: 5.000 kr.
Forfallagjald
- Tilkynna þarf forföll fyrir kl 15 deginum áður.
- Rukkað er forfallagjald sem nemur helmingi við kostnað bókaðs tíma.